20. október 2023 kl. 6:18
Erlendar fréttir
Ísrael-Palestína
Íbúar ísraelsk landamærabæjar fluttir brott
Íbúar ísraelska bæjarins Kiryat Shmnoa verða fluttir á brott að kröfu varnarmálaráðuneytisins. Bærinn er norðanvert í landinu, telur um tuttugu þúsund íbúa og er um í tveggja kílómetra fjarlægð frá landamærunum að Líbanon. Bardagar hafa blossað upp milli Ísraelshers og vígamanna Hezbollah á svæðinu undanfarna daga.
Líbanski herinn staðhæfir að ísraelskir hermenn hafi skotið fréttamann til bana, sem var í sjö manna hópi fjölmiðlafólks, nærri þorpinu Hula í sunnanverðu Líbanon. Ísraelsher kveðst munu rannsaka sannleiksgildi ásökunararinnar.