20. október 2023 kl. 7:07
Erlendar fréttir
Innrás í Úkraínu

Rússlandsforseti heimsótti höfuðstöðvar hersins

Vladimír Pútín Rússlandsforseti heimsótti höfuðstöðvar rússneska hersins í borginni Rostov við Don.

FILE - Russian President Vladimir Putin holds a binoculars as he watches the joint strategic exercise of the armed forces of the Russian Federation and the Republic of Belarus Zapad-2021 at the Mulino training ground in the Nizhny Novgorod region, Russia, on Sept. 13, 2021. The Kremlin has rejected Ukrainian and Western allegations that it amassed troops preparing for possible invasion of Ukraine, describing the claims as a cover for their own alleged aggressive designs. (Sergei Savostyanov, Sputnik, Kremlin Pool Photo via AP, File)
AP

Þaðan er sókn Rússlandshers inn í Úkraínu stýrt og hún skipulögð. Í yfirlýsingu frá Kreml segir að forsetinn hafi komið við í herstöðinni eftir dagsferð til borgarinnar Perm í Úrafjöllum.

Valery Gerasimov hershöfðingi, formaður rússneska herráðsins, greindi Pútín frá nýjustu tíðindum af framgangi hernaðarins. Úkraínsk stjórnvöld sögðust á þriðjudag fyrsta sinni hafa beitt langdrægum, bandarískum eldflaugum við árás á Rússland. Daginn eftir sagði Pútín tilkomu flauganna engu breyta, þær myndu aðeins draga þjáningar Úkraínumanna á langinn.