23. október 2023 kl. 2:30
Erlendar fréttir
Danmörk
Fékk handsprengju á öngulinn — tvisvar
Sprengjusérfræðingar danska hersins voru í gær tvívegis kallaðir að Damhus-vatni, vestan við Kaupmannahöfn. Ástæðan var sú að veiðimaður fékk handsprengju á öngulinn, með örfárra klukkustunda millibili. Það er venjubundið að kalla sprengjusérfræðinga til þegar sprengjur finnast, jafnvel þótt ekki virðist stafa af þeim hætta, segir Henrik Svejstrup varðstjóri í Kaupmannahafnarlögreglunni í samtali við DR. Sprengjurnar höfðu legið á vatsnbotni í 70 ár.