2. nóvember 2023 kl. 13:17
Erlendar fréttir
Rússland

Rússar draga sig úr sátt­mála um bann við kjarna­vopna­til­raun­um

Rússar dróu tilskipun um bann við kjarnavopnatilraunum formlega til baka í dag þegar Vladimír Pútín Rússlandsforseti undirritaði samþykkt þingsins. Samkvæmt alþjóðasáttmála sem undirritaður var 1996 á að vera algjört bann við kjarnorkusprengingum, þar á meðal tilraunir með kjarnavopn. Sáttmálinn tók þó aldrei gildi þar sem lykilríki, á borð við Bandaríkin og Kína, fullgiltu hann aldrei.

Í síðustu viku fylgdist Pútín með æfingum þar sem líkt var eftir hefndarárás vegna kjarnorkuárásar óvinaríkis. Hann sagði í síðasta mánuði að of snemmt væri að segja til um hvort Rússar ætli að gera tilraunir með kjarnavopn.