3. nóvember 2023 kl. 23:50
Erlendar fréttir
Nepal

Yfir fimm­tíu látin í jarð­skjálfta í Nepal

Að minnsta kosti 56 fórust í jarðskjálfta af stærðinni 5,6 sem reið yfir afskekkt héruð vestarlega í Nepal síðdegis í dag. Tugir slösuðust að sögn embættismanna, sem óttast að fleiri eigi eftir að finnast látin. Björgunarstörf standa yfir og innanríkisráðuneyti landsins ætlar að senda björgunarsveitir til aðstoðar.