15. desember 2023 kl. 22:44
Erlendar fréttir
Evrópa

Búlgaría skrefi nær Schengen

Frá miðborg Sofiu, höfuðborgar Búlgaríu. Þarna sjást bílar á götu fyrir utan hús sem er merkt Grand Hotel Bulgaria.
EPA / VASSIL DONEV
Frá miðborg Sofiu, höfuðborgar Búlgaríu.

Búlgaría hefur uppfyllt skilyrði til að fá aðild að Schengen-samstarfinu með því að styrkja landamæravörslu og vinna gegn ólöglegum innflutningi fólks.

Þetta sagði Eric van der Burg, aðstoðardómsmálaráðherra Hollands í dag, en Holland og Austurríki hafa fram að þessu neitað að samþykkja aðild Búlgaríu með þeim rökum að hælisleitendum á Schengen-svæðinu gæti fjölgað við það.

Nýleg úttekt á vegum Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins leiddi hins vegar í ljós að að flest væri eins og það átti að vera, þar á meðal landamæraeftirlitið.

Í bréfi til þingsins sagði van der Burg að stjórnvöld í Sofíu gætu enn gert betur.

Schengen-samningurinn, sem gerir íbúum kleift að ferðast óhindrað innan svæðsins, telur nú 27 ríki. Þar eru öll ESB-ríkin fyrir utan Búlgaríu, Rúmeníu, Kýpur og Írland ásamt EES-ríkjunum Íslandi, Noregi, Lichtenstein og Sviss.

Búlgaría og Rúmenía hafa lengi reynt að fá inni í Schengen, en aldrei hlotið brautargengi. Þeim var síðast hafnað í lok síðasta árs þegar Holland og Austurríki beittu neitunarvaldi gegn þeim.