Minnst tveir særðust þegar rússneskur dróni hæfði íbúðarhús í vesturhluta Kænugarðs í nótt, að sögn úkraínskra yfirvalda.
Vitali Klitscko, borgarstjóri í Kænugarði, sagði í færslu á Telegram að kviknaði hefði í þaki hússins. Karlmaður hafi verið fluttur á sjúkrahús en önnur manneskja hafi hlotið aðhlynningu á vettvangi. Klitscho sagði að brak úr dróna hefði fallið á hús í suður- og austurhluta borgarinnar. Engar upplýsingar um mannfall þar liggja fyrir að svo stöddu.