Ellefu eru slasaðir eftir sprengingu við hótel í miðborg Fort Worth í Texas í Bandaríkjunum í kvöld. Einn er alvarlega slasaður að sögn yfirvalda.
ASSOCIATED PRESS / Cameron Arnold
Ekki er talið að sprengingin hafi komið til með saknæmum hætti. Að sögn skrifstofu áfengis, tóbaks, skotvopna og sprengiefna í Bandaríkjunum má rekja tildrög hennar til jarðgass.
Mikil gaslykt liggur í loftinu eftir sprenginguna og brak dreifðist um nærliggjandi götu sem leiddi til umferðartafa.