7. febrúar 2024 kl. 9:11
Erlendar fréttir
Innrás í Úkraínu

Þrennt drepið í árásum Rússa

Að minnsta kosti þrír voru drepnir í árásum Rússa á Úkraínu í morgun. Rússneski herinn skaut 44 eldflaugum og 20 drónum að skotmörkum víða um landið, en loftvarnir Úkraínu náðu aðeins að skjóta niður 29 eldflaugar og 15 dróna, að því er Valery Zaluzhny, yfirmaður úkraínska heraflans, sagði í tilkynningu á samfélagsmiðlinum Telegram.

Volodymyr Zelensky, forseti landsins, sagði í tilkynningu að um hafi verið að ræða stóreflis árás gegn landinu. Einn lést í borginni Mykolaiv í suðurhluta landsins og tveir í höfuðborginni Kænugarði.