Öldungadeildin samþykkir stuðning við Úkraínu
Öldungadeild bandaríkjaþings hefur samþykkt frekari fjárstuðning við Úkraínu vegna innrásar Rússa og yfirstandandi stríðsátaka. Repúblíkanar hafa ekki viljað veita samþykki sitt og búist er við að andstaðan verði töluverð þegar frumvarpið fer til fulltrúadeildar þingsins. Það felur í sér rúmlega 95 milljarða bandaríkjadala fjárframlag, sem skiptist meðal annars milli Úkraínu, Ísraels og neyðaraðstoðar á Gasa og Vesturbakkanum.
Mestir fjármunir eiga að fara til Úkraínu, rúmlega sextíu milljarðar bandaríkjadala. Hart hefur verið deilt um stuðning við Úkraínu á bandaríkjaþingi og deilurnar teygja sig inn í kosningabaráttu þeirra Donalds Trumps og Joes Bidens bandaríkjaforseta. Biden segir brýna þörf að koma fjármunum til Úkraínu sem fyrst en Trump hefur gefið til kynna að Bandaríkin ættu að hætta að veita fjárhagsaðstoð út fyrir landsteinana, nema í formi lána.