Árásir Húta tefja flutning hjálpargagna til Súdan
Flutningur hjálpargagna til Súdan hefur tafist vegna áframhaldandi árása Húta í Jemen á flutningaskip á Rauðahafi. Átök hafa geisað milli súdanska hersins og RSF-hersins síðan í apríl á síðasta ári. Um helmingur íbúa Súdan, eða um 24 milljónir, þurfa á neyðaraðstoð að halda og tæplega átta milljónir eru á vergangi, samkvæmt gögnum Sameinuðu þjóðanna.
Árásir Húta hafa haft mikil áhrif á flutning um Rauðahaf og hafa nokkur fyrirtæki hætt að nota þessa mikilvægu siglingaleið.
Hjálparsamtök stóðu þegar frammi fyrir hindrunum í flutningi hjálpargagna um Súdan vegna yfirstandandi átaka í landinu. Nú koma færri og smærri skip með hjálpargögn til Súdan vegna árás Húta, þau eru lengur á leiðinni og kostnaður hefur hækkað, segir yfirmaður hjálparsamtakanna Save the Children í Súdan í samtali við Guardian.