19. febrúar 2024 kl. 4:31
Erlendar fréttir
Bandaríkin
Tveir lögreglumenn og sjúkraliði skotnir til bana í Minnesota
Þrír viðbragðsaðilar voru skotnir til bana í Minnesota í Bandaríkjunum aðfaranótt sunnudags eftir að þeir komu á vettvang eftir tilkynningu um heimiliserjur. Yfirvöld segja hina látnu vera tvo lögreglumenn og sjúkraliða sem voru fyrstir á vettvang. Einn lögreglumaður til viðbótar sé særður en áverkar hans ekki taldir lífshættulegir.
Árásarmaðurinn er látinn en lögregla hefur ekki gefið upp dánarorsök hans.
Lögregla segir árásarmanninn hafa skotið á lögreglumenn eftir að þeir höfðu gert tilraunir til að ræða við hann. Nokkur börn hafi verið inni á heimilinu. Tekist hafi að bjarga þeim og þau séu öll ómeidd. Lögregla fann þónokkur skotvopn inni á heimilinu.