Hermaður úr flugher Bandaríkjanna er látinn eftir að hann kveikti í sjálfum sér fyrir utan sendiráð Ísraels í Washington í gær. Leyniþjónustumenn slökktu eldinn áður en maðurinn var fluttur á sjúkrahús.
Í myndbandi sem var streymt beint á vefnum Twitch kynnti maðurinn sig og sagðist ekki lengur vilja eiga þátt í þjóðarmorði. Þá heyrist hann hrópa: „Frjáls Palestína,“ á meðan hann brennur.
Sprengjusveit var send á staðinn til að leita af sér allan grun. Svæðið var lýst öruggt skömmu síðar. Enga starfsmenn sendiráðsins sakaði og maðurinn sem kveikti í sér var þeim ekki kunnugur.