26. febrúar 2024 kl. 21:29
Erlendar fréttir
Grænland

Konurnar sem afhjúpuðu lykkjuskandalinn verðlaunaðar

Þær grænlensku konur sem stigu fram og greindu frá brotum gegn sér í lykkjuherferð danskra stjórnvalda hlutu í dag verðlaun Mannréttindastofnunar Danmerkur. Grænlenska ríkisútvarpið, KNR, hefur eftir einni þeirra, Naju Lyberth, að verðlaunin séu þeim afar mikilvæg og hvetjandi.

Í hlaðvarpsþætti danska ríkisútvarpsins, DR, vorið 2022 sögðu konurnar í fyrsta sinn opinberlega frá því hvernig getnaðarvarnarlykkjunni var komið fyrir í þeim án samþykkis eða vitundar.

Talið er að það sama hafi verið gert við á fimmta þúsund stúlkna á Grænlandi á áttunda áratugnum. Tilgangurinn var að hægja á fólksfjölgun. Konurnar hafa krafist rannsóknar á málinu frá þeim tíma og til dagsins í dag.

DR

Mynd af Naju Lyberth. Einni þeirra sem hlaut í dag mannréttindaverðlaunin.