Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur dregið í land yfirlýsingar um að vopnahlé náist milli Hamas-samtakanna og ísraelskra stjórnvalda fyrir mánudag.
Biden var spurður af fréttamanni fyrir utan Hvíta húsið hvort hann væri enn vongóður um að vopnahlé náist. „Vonin sigrar allt. Ég var á símafundi með fólki á svæðinu, líklegast ekki fyrir mánudag en ég er vongóður.“
EPA-EFE / LEIGH VOGEL / POOL
Fulltrúar Hamas sögðu bjartsýni Biden ekki endurspegla raunveruleikann og að bilið milli samtakanna og ísraelskra stjórnvalda sé enn mikið.
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, sagði á fimmtudag að hann ætlaði ekki að láta undan alþjóðlegum þrýstingi um að binda endi á stríðið fyrr en stjórnvöld hafi náð öllum sínum markmiðum.