6. maí 2024 kl. 5:30
Erlendar fréttir
Ísrael-Palestína

Minnst 100 þúsund verða flutt frá Rafah — viðræður halda áfram í dag

Ísraelsher hvetur almenning til að yfirgefa Rafah, sunnanvert á Gaza og halda til þess sem kallað er „stækkað öryggissvæði á Gaza“. Herinn segir að að 100.000 manns verði flutt á brott. Ráðstöfunin er álitin vera gerð í aðdraganda innrásar landhers í borgina.

Maður stendur fyrir frama húsarústir eftir árás ísraelska hersins á byggingu í borginni Rafah á Gaza-svæðinu. Hrúgur af steypu og járnum liggja þar sem húsið stóð.
ASSOCIATED PRESS / Fatima Shbair
Maður stendur við húsarústir í Rafah.

Varnarmálaráðherrann Yoav Gallant ýjaði að því í gær að árás væri yfirvofandi á Rafah þar sem rúmlega milljón Palestínufólks hefur leitað skjóls.

Yoav Galant varnarmálaráðherra í ríkisstjórn Benjamíns Netanjahús sem tók við völdum í Ísrael undir árslok 2022.
EPA-EFE/ATEF SAFADI
Yoav Gallant, varnarmálaráðherra Ísraels.

Áfram verður reynt í dag að finna lausn sem tryggt getur samkomulag milli Ísrael og Hamas. Bill Burns, forstjóri leyniþjónustu Bandaríkjanna, er væntanlegur til Katar til neyðarfundar um málið með forsætisráðherranum Mohammed bin Abdulrahman Al-Thani.

Heldur er á brattann að sækja enda krefjast leiðtogar Hamas endaloka stríðsins sem Benjamín Netanjahú segir jafngilda ósigri Ísraels. Fulltrúar Hamas eru sagðir væntanlegir í dag til Katar á samráðsfund.

Þeir halda svo þaðan aftur til Kaíró höfuðborgar Egyptalands, þar sem samningaviðræður með fulltingi Egyptalands, Katar og Bandaríkjanna runnu út í sandinn í gær. Fulltrúar Ísraels voru ekki viðstaddir en fyrir lá tillaga um fjörutíu daga vopnahlé og skipti á gíslum Hamas fyrir Palestínufólk í ísraelskum fangelsum.