16. maí 2024 kl. 4:00
Erlendar fréttir
Færeyjar

Þingmenn felldu frumvarp sem heimila átti þungunarrof að 12. viku

Færeyskum konum verður ekki heimilað að undirgangast þungunarrof að tólftu viku meðgöngu.

Frá umræðum í lögþingi Færeyja 15. maí 2024 um frumvarp dómsmálaráðherrans Bjarna Kárasonar Petersen, sem tryggja átti heimild til þungunarrofs til og með 12. viku meðgöngu. Frumvarpið féll á jöfnu, 15:15. Bjarni ráðherra er lengst til hægri á myndinni.
Frá umræðum um frumvarið í Lögþinginu. Bjarni Kárason Petersen situr lengst til hægri.KVF/Bjarni Árting Rubeksen / Bjarni Árting Rubeksen

Kringvarpið fjallar um málið á vef sínum. Lögþingið felldi í gær frumvarp dómsmálaráðherra þess efnis. Málið féll á jöfnu, 15 voru með og 15 á móti, en 33 sitja á Lögþinginu.

Núgildandi lög eru frá árinu 1956 og þótt þau banni ekki þungunarrof þarf hver kona að uppfylla nokkur skilyrði svo rjúfa megi meðgöngu, meðal annars hafi henni verið nauðgað eða ef meðgangan telst henni lífshættuleg.

Dómsmálaráðherrann Bjarni Kárason Petersen lagði frumvarpið fram í janúar með þeim rökum að núgildandi lög endurspegluðu hvorki almannaviðhorf né framþróun í læknavísindum. Einnig stóð til að heimila að rjúfa meðgöngu eftir 12. viku mætu læknar eða aðrir sérfræðingar að heilsu eða lífi móður væri ógnað.

Það hefur verið fátíðara að færeyskar konur undirgangist þungunarrof en kynsystur þeirra á hinum Norðurlöndunum.

Á seinni hluta 10. áratugar seinustu aldar var þungun rofin að meðaltali 50 sinnum á ári, við aldamótin voru aðgerðirnar komnar niður í 40 til 45 og á öðrum áratug nýrrar aldar voru þær um 30 ár hvert.