16. maí 2024 kl. 5:05
Erlendar fréttir
Ísrael-Palestína

Þúsundir neyðarskýla fluttar til Gaza

Flutningaskip er á leið frá Kýpur með um það bil hundrað tonn af ýmsum nauðþurftum sem Bretar útvega stríðshrjáðum íbúum Gaza.

Meðal þess sem breska ríkisstjórnin ákvað að senda til liðsinnis stríðshrjáðum íbúum Gaza voru 8.400 neyðarskýli gerð úr plasti.
AP / ASSOCIATED PRESS

Skipið lagði upp frá Kýpur í gær og flytur meðal annars 8.400 neyðarskýli gerð úr plasti. Ætlunin er að afferma skipið við nýbyggða bráðabirgðabryggju sem Bandaríkjaher setti saman við strendur Gaza. Breska sendingin yrði þá sú fyrsta þangað en utanríkisráðuneyti Bretlands leggur ríka áherslu á að innihald hennar verið afhent án nokkurrar tafar.