25. maí 2024 kl. 22:30
Erlendar fréttir
Finnland
Einn handtekinn í tengslum við andlát 15 ára stúlku
Finnska lögreglan rannsakar nú andlát fimmtán ára stúlku sem fannst látin í skógi við Valkeakoski í sunnanverðu Finnlandi í morgun. Málið er rannsakað sem manndráp að því er fram kemur á vef finnska ríkisútvarpsins YLE. Einn hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn málsins.
Stúlkan skilaði sér ekki heim eftir að hafa verið í samkvæmi á föstudagskvöld og var hvarf hennar tilkynnt til lögreglunnar. Vinir hennar fundu hana látna í skóglendi í gærmorgun en enginn þeirra er grunaður um aðild að málinu.
Lögreglan segir rannsóknina vera á frumstigi og hefur lítið gefið upp um málið að svo stöddu.
Fréttin hefur verið uppfærð.