Ómannaða kínverska rannsóknarfarið Chang'e-6 er á leið til jarðar eftir að hafa safnað sýnum af fjarhlið tunglsins.
Frá endurkomu annars tunglfars Kínverja til jarðar.XINHUA / EPA-EFE
Aldrei áður hefur verið lent á þessari hlið tunglsins. Ríkisfréttastofan Xinhua greinir frá þessu og segir leiðangurinn vel heppnaðan. Farið sem nefnt er eftir kínverskri gyðju tunglsins skildi eftir kínverskan fána á þeirri hlið mánans sem ekki er sýnileg mönnum.
Notaður var sérstakur bor til að safna sýnum undir yfirborðinu sem farið loks týndi upp með sérstökum vélarmi. Vísindamenn eru vongóðir um að sýnin varpi ljósi á hvernig tunglið varð til í árdaga.