Hjálparsamtökin Oxfam vara við að með hverjum deginum aukist hætta á hungursneyð á öllu Gaza. Ísraelar hindri enn flutning á neyðargögnum og því sé staðan orðin sú að nær ógerlegt sé fyrir hjálparsamtök að koma neyðarbirgðum til sveltandi íbúa.
Eina leiðin sem haldið sé opinni sé Karem Abu Salem. Erfitt sé að flytja nokkuð þar um vegna þess hve lengi Ísraelar séu að samþykkja flutning og eins vegna sérstaklega hættulegs ástands þar.
Yfirmaður Oxfam í Mið-Austurlöndum segir að þegar allsherjar hungursneyð skelli á geti verið of seint að ætla að bjarga fólki frá dauða. Fólk hefur þegar dáið úr hungri á Gaza. Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna lýsti yfir í mars að hungursneyð væri skollin á í norðurhluta Gaza.