12. júní 2024 kl. 6:30
Erlendar fréttir
Innrás í Úkraínu

Stoltenberg fundar með Orban um afstöðuna til Úkraínu

Embættismenn innan NATÓ telja ekki ólíklegt að framkvæmdastjórinn Jens Stoltenberg bjóði Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, upp á leið til að komast hjá beinni þátttöku í liðsinni við Úkraínu. Stoltenberg hefur farið milli NATÓ ríkjanna að leita liðsinnis við áætlun sem kynnt verður á fundi bandalagsins í næsta mánuði.

epa06539940 Hungarian Prime Minister Viktor Orban delivers his annual 'State of Hungary' speech in Budapest, Hungary, in Budapest, Hungary, 18 February 2018. The inscription reads: 'For us Hungary is first!'  EPA-EFE/Zoltan Mathe
Viktor Orban hefur verið Evrópusambandinu og NATÓ erfiður ljár í þúfu.MTI / EPA-EFE

Ungverjar hafa lagst harðlega gegn hugmyndum Stoltenbergs um aukna aðkomu bandalagsins að afhendingu hergagna til Úkraínu og þjálfun hermanna. Það viðhorf hefur valdið titringi meðal NATÓ ríkjanna, sem óttast að Ungverjar reyni að setja bandalaginu stólinn fyrir dyrnar.

Stoltenberg hefur einnig lagt að bandalagsríkjunum að leggja Úkraínu til aðstoð að verðmæti 40 milljarða evra svo lengi sem þurfi. Atlandshafsbandalagið hefur lengi forðast bein afskipti af vopnasendingum til Úkraínu, af ótta við að færast nær átökum við Rússa.

Stoltenberg hittir Viktor Orban í Búdapest í dag, sem hefur sagst jafnvel vilja endurmeta stöðu Ungverjalands innan NATÓ til að komast hjá þátttöku í hernaðaraðgerðum utan vébanda þess. Orban hefur sagt hugmyndir Stoltenbergs geta dregið NATÓ inn í átök við Rússa og hefur þvertekið fyrir að afhenda Úkraínumönnum vopn.

Bandaríkjastjórn hefur hingað til skipulagt vopnaafhendingu ríkja Atlantshafsbandalagsins Úkraínu. Ástæða aukinnar aðildar NATÓ er talin vera svo tryggja megi framhald hennar þótt svo fari að Donald Trump verði endurkjörinn og stöðvi allan stuðning Bandaríkjanna.