18. júlí 2024 kl. 1:53
Erlendar fréttir
Kína

Sextán létust í bruna í verslunarmiðstöð í Kína

Sextán létust í bruna í verslunarmiðstöð í suðvestanverðu Kína í dag. Eldurinn kviknaði síðdegis á neðri hæðum byggingarinnar sem er fjórtán hæðir. Slökkviliði tókst að bjarga tugum fólks úr byggingunni og stóð slökkvistarf í rúmlega tvær klukkustundir.

Yfirvöld hvöttu almenning til stillingar þegar getgátur fóru á flug um umfang og uppruna eldsvoðans á samfélagsmiðlum.

Talið er að eldsupptök megi rekja til framkvæmda. Þau eru nú til rannsóknar.