„Ég er engin hetja“
John Hayes gæti hafa bjargað mannslífum þegar hann hljóp inn á vettvang þar sem 17 ára piltur stakk fjölda barna og fullorðinna í Southport í Bretlandi á mánudag.
Hayes tókst á við árásarmanninn og var stunginn í fótlegginn í látunum. Þegar samverkamaður Hayes kom aðvífandi hljóp pilturinn á brott.
Hayes segir málið alls ekki eiga að snúast um sig heldur stúlkurnar þrjár sem voru myrtar í árásinni og þau sem eiga um sárt að binda. Hann sé engin hetja.