7. ágúst 2024 kl. 3:30
Erlendar fréttir
Þýskaland

Einn látinn og átta manns grafin undir rústum hótels

Að minnsta kosti einn lét lífið og óttast er að átta séu grafin undir rústum gamals hótels sem hrundi að hluta til í Kröv, litlum ferðamannabæ í Rínarlandi-Pfalz, suðvestanvert í Þýskalandi.

Að minnsta kosti einn lét lífið þegar hótel í bænum Kröv í Þýskalandi hrundi að hluta til að kvödli 6. júlí 2024. Níu grófust undir rústunum.
Gafl hótelsins gaf sig með þeim afleiðingum að tvær hæðir hrundu.NRK/CHRISTIAN SCHULZ / DPA

Lögregla kveðst hafa náð sambandi við sex úr hópnum samkvæmt fréttum útvarpsstöðvarinnar Südwestrundfunk. Talið er að nokkur hafi hlotið alvarlega áverka. Fimm af 14 gestum hótelsins tókst að komast út í tæka tíð.

Gafl hótelsins gaf sig um ellefuleytið í gærkvöld að staðartíma með þeim afleiðingum að tvær hæðir féllu saman. Sjónarvottar segjast hafa heyrt háan hvell og að þykkt rykský hafi þyrlast upp en ekki er vitað hvað varð til þess að gaflinn hrundi.

Fréttin var uppfærð klukkan 6:25 með nánari upplýsingum.