Tugir þúsunda Ísraela komu saman í dag og kröfðust þess að ríkisstjórn Benjamíns Netanjahús semji við Hamas-samtökin um vopnahlé á Gaza og frelsun þeirra um hundrað sem enn er í haldi.
Fjölmenni í Tel Aviv sem krefst vopnahlés og frelsun gísla Hamas.EPA-EFA / EPA-EFE/ABIR SULTAN
The Times of Israel hefur eftir skipuleggjendum að minnst hálf milljón hafi tekið þátt í mótmælum í stórborginni Tel Aviv. Einnig voru mótmæli í Jerúsalem, Haífa og Kfar Saba.
Mótmæli hafa færst í aukana frá því um síðustu helgi þegar Ísraelsher fann lík sex gísla í borginni Rafah á Gaza. Milligöngumönnum hefur ekki enn tekist að draga upp samning sem stríðandi fylkingar geta sætt sig við.