2. desember 2024 kl. 20:07
Erlendar fréttir
Loftslagsmál

Aðgerðaleysi í loftslagsmálum fyrir Alþjóðadómstólinn í Haag

Réttarhöld, sem talin verða þau umfangsmestu við Alþjóðadómstóllinn í Haag, hófust í dag.

Þar meta dómarar hvað ríkjum heims beri að gera til að sporna við loftslagsbreytingum og hjálpa þeim ríkjum sem eru hvað viðkvæmust fyrir þeim.

Fulltrúar hundrað ríkja og samtaka koma fyrir dóminn, þar á meðal fulltrúar Bandaríkjanna, Kína og Indlands. Smáríkið Vanuatu reið á vaðið í dag. Þar hafa stjórnvöld lýst yfir neyðarástandi vegna loftslagsbreytinga. Búist er við ráðgefandi áliti dómstólsins í byrjun næsta árs.

epa11752976 Climate activists watch a livestream while protesting outside the door of the International Court of Justice (ICJ) in The Hague, The Netherlands, 02 December 2024, where judges will spend from 02 until 13 December in a series of hearings examining countries' obligations in the fight against climate change. The case is taking place at the initiative of Vanuatu, a small Pacific island group east of Australia.  EPA-EFE/LINA SELG
EPA-EFE / LINA SELG