Norski olíusjóðurinn skilaði 0,6 prósenta tapi á fyrsta ársfjórðungi, og lækkaði þannig um 415 milljarða norskra króna, jafnvirði rúmlega 5.000 milljarða íslenskra króna. Vegna styrkingar norsku krónunnar gagnvart öðrum helstu gjaldmiðlum varð tapið talsvert meira, eða samanlagt um 1.215 milljarðar norskra króna. Sjóðurinn stóð eftir í 18.526 milljörðum norskra króna.
EPA-EFE / OLE BERG-RUSTEN
Um 70 prósent sjóðsins er í formi hlutabréfa, 27,7 prósent í skuldabréfum, 1,9 prósent í óskráðum fasteignum og 0,4 prósent í óskráðum endurnýtanlegum orkuinnviðum.
Sjóðurinn á hluti í um 9.000 fyrirtækjum um allan heim.