3. maí 2025 kl. 9:49
Erlendar fréttir
Ísrael-Palestína

Þrjú börn drepin í flóttamannabúðum

Þrjú börn eru á meðal þeirra sem drepin voru í loftárás Ísraelshers á flóttamannabúðirnar Khan Yunis á Gaza í nótt. Yfirvöld þar segja að ellefu hafi verið drepin í árásinni, þar af börnin þrjú.

Eldflaug var í nótt skotið frá Jemen í átt að Ísrael, sem samkvæmt upplýsingum þarlenda hernaðaryfirvalda var grandað. Uppreisnarsveitir Húta sem ráða lögum og lofum í stórum hluta Jemen hafa síðan í október 2023 skotið eldflaugum og gert drónaárásir á Ísrael og skip á siglingu um Rauðahaf.

Hútar hafa þó ekki sagst hafa skotið flauginni í nótt en lýstu ábyrgð á tveimur árásum í fyrradag.

epa12069088 Internally displaced Palestinian children rest as they gather to receive food from a charity kitchen in Khan Yunis, southern Gaza Strip, 02 May 2025. According to the UN Palestinian refugee agency UNRWA, over a million people across the Gaza Strip are experiencing 'high levels' of acute food insecurity, with acute malnutrition several times higher than before the war. The UN estimates at least 1.9 million people (nine in ten) are internally displaced.  EPA-EFE/HAITHAM IMAD
Ísraelsher hefur stöðvað flutning hjálpargagna til Gaza.EPA-EFE / HAITHAM IMAD