21. maí 2025 kl. 23:18
Erlendar fréttir
Ísrael-Palestína

90 vörubílum með neyðaraðstoð hleypt inn á Gaza

A truck loaded with humanitarian aid for the Gaza Strip makes its way to the Kerem Shalom crossing in southern Israel, Israel-Gaza border, Tuesday, May 20, 2025. (AP Photo/Maya Alleruzzo)
AP / Maya Alleruzzo

Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna vinna að því að dreifa hjálpargögnum á Gaza eftir að 90 vörubílum með neyðaraðstoð var hleypt í gegnum Kerem Shalom-landamærastöðina í dag .

Þetta er í fyrsta sinn sem ísraelsk stjórnvöld leyfa flutning neyðargagna síðan 2. mars.

Yfirmaður mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum fullyrti í gær að fjórtán þúsund börn gætu dáið á Gaza á næstu tveimur sólarhringum ef hjálpargögn berast ekki í tæka tíð.

Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels sagði á blaðamannafundi í kvöld einungis tilbúinn að ljúka stríðinu ef Hamas leggur niður vopn, leiðtogar samtakanna verði reknir á brott og svæðið allt gert vopnlaust.