7. desember 2022 kl. 7:08
Innlendar fréttir
750 milljónir í sameiginleg varnartengd verkefni
Verja á 750 milljónum til að fjármagna sameiginleg varnartengd verkefni með bandalagsþjóðum Íslands sem ætlað er að leggja vörnum Úkraínu lið. Þetta kemur fram í einum af fjölmörgum breytingartillögum meirihluta fjárlaganefndar við fjárlagafrumvarp næsta árs.
Nefndin telur mikilvægt að bregðast skjótt við og efla viðnámsþol til lengri tíma. Gera megi ráð fyrir að stærstur hluti þess stuðnings sem Ísland geti veitt á sviði varnarmála felist í þjálfun við sprengjuleit-og eyðingu og að útvega hlífðarbúnað og klæðnað.