7. desember 2022 kl. 15:24
Innlendar fréttir
Dómurinn sem varð til þess að hrikti í stoðum Landsréttar ómerktur
Hæstiréttur ómerkti í dag dóm í máli ákæruvaldsins gegn Guðmundi Andra Ástráðssyni fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Málið hafði mikil áhrif á íslenska dómstóla. Því var vísað til Mannréttindadómstóls Evrópu sem dæmdi að brotið hefði verið gegn rétti Guðmundar Andra til réttlátrar málsmeðferðar. Það var vegna þess að einn dómaranna í Landsrétti kom úr röðum þeirra fjögurra sem Sigríður Andersen, þáverandi dómsmálaráðherra, tók fram fyrir fjóra umsækjendur sem dómnefnd um umsækjendur mat hæfari. Mál Guðmundar Andra fer aftur til efnismeðferðar í Landsrétti.