16. desember 2022 kl. 9:14
Innlendar fréttir

Yfir helmingur íslenskra kvenna með háskólamenntun

Samkvæmt Hagstofunni hafði 51 prósent kvenna á aldrinum 25 til 64 ára á Íslandi lokið einhverri háskólamenntun. Hlutfallið var 47,5 prósent árið 2020 en þar til í fyrra var það hæst 49,1 prósent bæði árin 2018 og 2019. Ríflega þriðjungur karla á sama aldri á sama aldri hafði lokið háskólamenntun í fyrra, eða 34,8 prósent.

Á móti fækkar þeim sem aðeins hafa lokið grunnskólamenntun. 18,1 prósent kvenna á þessum aldri hafa aðeins lokið grunnmenntun, og 24,1 prósent karla.