17. desember 2022 kl. 14:34Innlendar fréttirAðstoða fólk á lokaðri MosfellsheiðiAndri Yrkill ValssonBjörgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu hafa verið kallaðar út til aðstoðar fólki í föstum bílum á Mosfellsheiði, en þar hefur verið lokað síðan í nótt. Enn er unnið á Grindavíkurvegi og eru tugir björgunarsveitarmanna að sinna útköllum.