20. desember 2022 kl. 14:30
Innlendar fréttir

Ægileg röð á Reykjanesbraut

Frá því að Reykjanesbraut var opnuð til Keflavíkur skömmu fyrir hádegið hafa bílar og rútur streymt þangað í stórum stíl. Hallfríður Þórarinsdóttir, ferðalangur í einni flugrútunni, segir þau bílstjórann sammála um að röðin hljóti að telja nokkra kílómetra.

Hún tók eftirfarandi myndir úr rútunni og á þeim má sjá áberandi fjölda einkabíla á leið í átt að Leifsstöð. Reykjanesbrautin var opnuð í hina áttina, frá Keflavík til Reykjavíkur, um klukkan eitt.

Mynd af bílaröð á leiðinni frá Reykjavík til Keflavíkur; flestir á leið í Leifsstöð. Reykjanesbrautin var opnuð skömmu áður en hafði verið lokuð vegna ófærðar.
RÚV / Hallfríður Þórarinsdóttir