24. desember 2022 kl. 14:03
Innlendar fréttir
Messufall í Þorlákshöfn vegna óvissu um færð
Vegna óvissu um færð verður ekki messað í dag, aðfangadag í Þorlákskirkju í Þorlákshöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóknarprestinum Sigríði Mundu Jónsdóttur. Snjó hefur kyngt niður á Suðurlandi í dag og Vegagerðin hefur beðið fólk um að vera ekki á ferli nema á vel útbúnum bílum.