24. desember 2022 kl. 1:43
Innlendar fréttir
Renars Mezgalis talinn af og formlegri leit hætt
Formlegri leit að Renars Mezgalis hefur verið hætt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi. Renars, sem er 22 ára gamall, hefur verið saknað og leitað frá því að bíll hans fannst í flæðarmálinu í Þykkvabæjarfjöru hinn 16. desember síðastliðinn. Í tilkynningu lögreglu segir að talið sé að hann hafi lent í sjónum þar og sé látinn. Renars var ókvæntur og barnlaus.
Fram kemur að björgunarsveitir hafi verið við leit á ströndinni undanfarna daga, allt frá Þorlákshöfn og austureftir. Þá hafi þyrlusveit Landhelgisgæslu leitað úr lofti, síðast á föstudag frá Knarrarósvita að Hjörleifshöfða. Þótt leit hafi verið formlega hætt er áformað að fara fleiri ferðir um leitarsvæðið þegar veður og snjóalög leyfa.