26. desember 2022 kl. 12:44
Innlendar fréttir
Vonast til að rafmagn verði komið í kvöld
Helgi Guðjónsson, starfsmaður Veitna, vonast til þess að rafmagn í Grundahverfi á Akranesi verði aftur komið á í kvöld. „Við auðvitað vonumst til þess að þetta taki sem skemmstan tíma, en þetta er flókið, frosin jörð og margt sem tefur okkur. Við vorum að vonast til þess að þetta væri að koma fyrir kvöldið en það verður bara að fá að koma í ljós“.
Um 400 heimili á Akranesi hafa verið án rafmagns síðan í nótt.