27. desember 2022 kl. 11:13
Innlendar fréttir
Gular viðvaranir næstu daga
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular viðvaranir á suðaustanverðu og austanverðu landinu vegna norðaustanhríðar. Fyrsta viðvöruninn gildir á Suðausturlandi til klkukkan fjögur síðdegis. Aftur er búist við norðanhríð á Suðausturlandi í fyrramálið og þá nær hún líka inn á Austfirði. Ekki er búist við því að hríðin gangi niður fyrr en undir miðnætti á fimmtudagskvöld.