27. desember 2022 kl. 15:57
Innlendar fréttir
Snjóflóðarýmingu austur af Vík aflétt
Lögreglan á Suðurlandi hefur aflétt rýmingu tveggja húsa austur af Vík, þar sem varað var við snjófljóðahættu seint í gærkvöld.
Húsin tvö eru bæði hluti af hótelstarfsemi við Höfðabrekku í Mýrdal. Lögregla biður fólk enn að gæta að ferðum sínum undir bröttum hlíðum. Úrkoma hefur verið það mikil víða, segir lögregla, að hætta er á að spýjur hlaupi fram í fjallendi.