29. desember 2022 kl. 9:38
Innlendar fréttir

Rafmagnslaust á Reyðarfirði

Rafmagnslaust er á Reyðarfirði og hefur verið síðan um klukkan átta í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá RARIK er bilun í aflspenni á Stuðlum. Rafmagnsleysið nær ekki til álvers Fjarðaáls.

Gul viðvörun er enn í gildi á Austfjörðum og Suðausturlandi vegna norðaustan og norðan storms og hríðar, og verður í gildi þar til í fyrramálið. Lokað er yfir Fjarðarheiði vegna snjóa og annars staðar er víða ófært eða illfært á vegum þar eystra, og Vegagerðin biður vegfarendur að kynna sér veðurspár áður en lagt er af stað.