30. desember 2022 kl. 15:53
Innlendar fréttir

Icelandair seinkar öllu flugi á morgun

Icelandair seinkar öllum flugferðum á morgun vegna slæmrar veðurspár. Eins klukkutíma seinkun verður á flugi til Ameríku og tveggja tíma seinkun á flugi til Evrópu.

Icelandair hvetur farþega til að koma til Keflavíkur með rútu, nema þeir hafi úr vel búnum bíl að ráða. Útlit er fyrir að færð um Reykjanesbraut spillist á morgun.