7. janúar 2023 kl. 23:00
Innlendar fréttir

Sunak kallar eftir dirfsku og róttækni

Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, kallar eftir djörfum og róttækum aðgerðum til að takast á við krísu sem ríkir í breska heilbrigðiskerfinu um þessar mundir.

Heilbrigðiskerfið hefur átt í erfiðleikum með að mæta eftirspurn um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu vegna fjárskorts og sjaldgæfra verkfallsaðgerða. Í síðasta mánuði lögðu yfir hundrað þúsund hjúkrunarfræðingar niður störf til að mótmæla bágum kjörum og ófullnægjandi vinnuaðstæðum.

Á neyðarfundi með breskum heilbrigðisyfirvöldum sagði Sunak að dirfska og róttækni hafi komið heilbrigðiskerfinu í gegnum covid-faraldurinn. Og nú þyrfti slíkt hið sama til að komast í gegnum þessa erfiðleikatíma.