8. janúar 2023 kl. 18:11
Innlendar fréttir

Flateyrarvegi lokað í kvöld vegna snjóflóðahættu

Lögreglan á Vestfjörðum greinir frá því á Facebooksíðu sinni að Flateyrarvegi verði lokað klukkan 20 í kvöld. Snjóflóðahætta gæti aukist ofan vegarins og er veginum því lokað af öryggisástæðum. Athugað verður með opnun hans upp úr klukkan 7 í fyrramálið.

Fyrr í dag var greint frá því að veginum á milli Ísafjarðar og Súðavíkur verði lokað klukkan 20 í kvöld vegna aukinnar snjóflóðahættu. Þá eru flestir fjallvegir á Vestfjörðum lokaðir vegna hvassviðris og ofankomu og verða ekki opnaðir aftur í dag.