11. janúar 2023 kl. 16:52
Innlendar fréttir
Allstórt og óvænt snjóflóð féll nærri Flateyri
Snjóflóðaratsjá Veðurstofunnar á Flateyri nam allstórt flóð sem féll í Miðhryggsgili, innan við Flateyri, klukkan rúmlega ellefu í gærkvöld. Flóðið stöðvaðist um fjörutíu metra ofan við veg.
Í færslu ofanflóðavaktar Veðurstofunnar segir að snjóflóðið hafi komið á óvart þar sem veður var að mestu gengið niður á þessum slóðum, en að sama skapi vísbending um að það þurfi ekki mikið álag til að setja af stað snjóflóð.
Búast má við að svipaðar aðstæður geti leynst víða á landinu þar sem nýr snjór hefur safnast og er útivistarfólk hvatt til að fara með gát ef ferðast er um brattar hlíðar með nýjum snjó.