18. janúar 2023 kl. 7:16
Innlendar fréttir
Bjart og kalt syðra en hlýnar allhratt á næstunni
Í dag og á morgun verður svipað veður og verið hefur. Bjart og kalt á sunnan- og vestanverðu landinu en él á stangli annars staðar. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að annað kvöld nálgast úrkomubakki úr vestri. Líklega snjóar úr honum í fyrstu en á föstudag verður hösss suðaustanátt og sums staðar talsverð rigning og einnig hlýnar allhratt.
Vegna þessa er mikilvægt að opna leið fyrir vatn að komast burt í niðurföll en það getur verið snúið eftir lengri frostakafla og því vissara að geyma það ekki of lengi.