7. febrúar 2023 kl. 17:08
Innlendar fréttir
Þóra Arnórsdóttir til Landsvirkjunar
Þóra Arnórsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Þóra sagði starfi sínu lausu sem ritstjóri Kveiks í gær. Hún hefur starfað við frétta- og dagskrárgerð í 25 ár og unnið bæði í útvarpi og sjónvarpi, hjá Stöð 2 og RÚV.
Þóra var tilnefnd sem sjónvarpsmaður ársins 2007, 2010, 2011 og 2012 og hlaut áhorfendaverðlaun ársins 2012. Hún var einnig tilnefnd til Blaðamannaverðlaunanna 2009 og 2010.