22. febrúar 2023 kl. 13:24
Innlendar fréttir
Mæla með yfir 100 þúsund tonna aukningu á loðnukvóta
Hafrannsóknastonfun gerir ráð fyrir að hægt verði að auka loðnukvótann um meira en 100 þúsund tonn. Rannsóknarskip náðu ekki að fara yfir stóran hluta landhelginnar norðvestan við landið þegar mælingar voru gerðar í janúar. Dagana 12. til 21. febrúar sinnti rannsóknarskipið Árni Friðriksson mælingum þar og segir Hafrannsóknastofnun að umtalsvert magn af hrygningarloðnu hafi mælst á landgrunninu norður af Húnaflóa. Endanlegar niðurstöður liggja ekki fyrir, en stofnunin segir ljóst að mælingarnar leiði til hækkunar á tillögum um hámarksafla.
Áætla má að verðmæti þessa umframheimilda sé allt að 10 milljarðar króna.