Ingvi Már settur ráðuneytisstjóri í menningar- og viðskiptaráðuneytinu tímabundið
Ingvi Már Pálsson, skrifstofustjóri á skrifstofu viðskipta- og ferðamála í menningar- og viðskiptaráðuneytinu, hefur verið settur tímabundið sem ráðuneytisstjóri í einn mánuð, frá 1. mars til 31. mars á meðan ráðningaferli á nýjum ráðuneytisstjóra klárast að sögn Hafþórs Eide Hafþórssonar, aðstoðarmanns Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra.
Auglýst var eftir umsækjendum í embætti ráðuneytisstjóra í menningar- og viðskiptaráðuneytinu 27. desember 2022 og sóttu sjö um starfið. Umsækjendur eru Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum, Daníel Svavarsson, skrifstofustjóri, Eyjólfur Vilberg Gunnarsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri, Gísli Halldór Halldórsson, fyrrverandi bæjarstjóri, Sigrún Brynja Einarsdóttir, skrifstofustjóri, Sigurður Erlingsson, fyrrverandi forstjóri og Þröstur Óskarsson, sérfræðingur. Ráðherra skipar í embætti ráðuneytisstjóra til fimm ára.
Þriggja manna hæfnisnefnd, skipuð af ráðherra, metur hæfni umsækjenda og skilar inn greinargerð til ráðherra. Þorgeir Örlygsson, fyrrverandi forseti Hæstaréttar og ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu, er formaður hæfnisnefndarinnar. Aðrir nefndarmenn eru Magnús Pétursson, fyrrverandi ríkissáttasemjari og ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, og Valgerður Rún Benediktsdóttir, lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og fyrrverandi skrifstofustjóri í atvinnuvegaráðuneytinu.