9. mars 2023 kl. 18:37
Innlendar fréttir

Næstu tíu dagar óvenjulega kaldir

Næstu tíu dagar verða óvenju kaldir og vel undir meðalhita marsmánaðar. Birta Líf Kristinsdóttir veðurfræðingur segir litlar breytingar á veðrakerfum í kortunum þar sem norðlægar átti verði ráðandi. „Það sem er svona kannski helst markverðast er að það fer kólandi og það er alveg búist við hörkufrosti á öllu landinu. Það er kaldast núna um helgina en á síðan aðeins að draga úr frostinu í næstu viku en samt verður áfram bara mjög kalt hjá okkur,“ segir Birta Líf.

Gert er ráð fyrir frosti á bilinu 5 til 18 stig. Hún bendir á síðast hafi komið svona langvarandi kuldakast í desember og þegar það gerist geti það haft margskonar áhrif. „Þá náttúrulega getur þetta farið að hafa áhrif en það eru aðrir en ég sem að taka þær ákvarðanir. Þá er bara um að gera að fylgjast með því ef að þarf eitthvað að draga úr vatnsnotkun eða eitthvað slíkt. En það er allavega útilt fyrir að það verði kalt hjá okkur.“